Ábyrgir stjórnarhættir
Ábyrgir stjórnarhættir eru grundvöllur trausts og auknar kröfur eru nú gerðar til gagnsæis í rekstri félaga og ábyrgðar stjórnar í því samhengi. Skal stjórn í skýrslu sinni í ársreikningi nú m.a. staðfesta að upplýsingagjöf stjórnenda um árangur, stöðu, áhættu í rekstri og óvissuþætti sé réttmæt og að hún gefi glöggt yfirlit.
Að undanförnum hafa verið haldnar kynningar um breytingar sem er að verða í löggjöf hér á landi sem varða ábyrga stjórnarhætti, gagnsæi og um hlutverk lífeyrissjóða sem langtímafjárfesta. Kontra hefur komið að þessum viðburðum sem haldnir hafa verið á vegum Stjórnvísis, Hagfræðistofnunar og viðskiptafræðideildar Háskólans.

Í upphafi skal endinn skoða
Kontra býður upp á sérhæfða ráðgjöf á sviði óvissu og áhættugreininga og uppbyggingu burðarvirkis ábyrgra stjórnarhátta fyrir framsetningu árangurs og tengt samfélagsábyrgðar fyrirtækja. Kontra býður einnig upp á óháða staðfestingu þeirra upplýsinga stjórnenda sem stjórn skal staðfesta í ársreikningi.
Kontra Nordic er í farabroddi þekkingaruppbyggingar hér á landi á þessu en mikil þróun er hér á alþjóðavísu og þá ekki síst tengt áherslu á samþætt reikningsskil.